Strákarnir á verkstæðinu
Vinir
22.07.2006 00:59:27 / polfarinn

Viðtal

Pólfarinn náði tali af Ásgeiri Ásgeirssyni fyrr í dag og lagði fyrir hann nokkrar spurningar og svaraði hann þeim eftir bestu getu.

 

Fullt nafn: Ásgeir Ásgeirsson

 

Gælunafn: Krúsi, Sukki, Geiri Galdur, og Smjörsýru Geiri svo e-ð sé nefnt

 

Aldur: 23

 

Giftur/sambúð: Komin á markaðinn aftur ;) Ekk iþó vinnumarkaðinn

 

Börn: Nei, held að ég sé ófrjór

Atvinna/Starf: Er ennþá í pásu í Rækjuverksmiðjunni Miðfell á Ísafirði síðan 2001

Draumastarf: Að komast í afleisingar hjá Hólmgrími

Uppáhalds sjónvarpsefni: Bara allt

 

Besta bíómyndin: Djöflaeyjan, Baddi er mitt Idol í einu og öllu

 

Hvernig Tónlist hlustarðu á: Aðallega teknó pönk

 

Uppáhalds útvarpsstöð: Rás 2 og þátturinn þjóðarsálin,þar er ég virkur þáttakandi í umræðum

 

Uppáhalds drykkur: Bollan hans Gígga og svo líka Kók

 

Uppáhalds vefsíða: Atvinna.is Jobserve.is og svo náttúrulega ýmsir afþreyingarvefir eins og b2.is humor.is kvikmynd.is

 

Spilarðu tölvuleiki: Spilaði einu sinni Manager og gerði FH að íslandsmeisturum á 17 tímabili svo hef ég alltaf haft gaman af Sim City

 

Hvernig finnst þér þessi síða: Frábær í alla staði, flottur penni og mikið af fróðleik hérna, sannkallaður viskubrunnur

 

Hverja myndirðu vilja sjá á Tónleikum: Iðjuleysingjana

 

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum: Kalli Lú

 

Átrúnaðargoð: George Best, Paul Gasgoine, Tony Adams, Paul Merson, Svenni Blöndal og Let-Ingi

 

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum: Staðarfell, og svo Hamburg í útlöndum

Uppáhalds Dýr: Letidýr og Skógarbjörn (hann liggur í dvala á veturna)

Uppáhalds málsháttur: Letin kennir nakktri konuað spinna

Uppáhalds ljóð: Lati Geir á lækjarbakka, lá þar til hann dó

Uppáhalds barnaefni: Latibær

Uppáhalds stóll: Lazy Boy

Uppáhalds spil: Lató

 

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna: Á daginn meinarðu,

 

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Mætingu

 

Mestu vonbrygðin í lífinu: Þegar ég komst að því að ég var lykkjubarn

 

Og að lokum, hvernig myndirðu lýsa þér í fáum orðum: Duglegur, þó að Sigvaldi vilji meina annað, Vinnusamur, stundvís, reglumaður, og Áræðanlegur

 

Þökkum Ásgeiri fyrir gott og einlægt spjall


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 18:50:44 / polfarinn

RIP

Ég varð fyrir gríðarlegu persónulegu tjóni og áfalli rétt áðan, síðasta mjólkurbikarsglasið mitt brotnaði þegar ég var að vaska það upp (Já ég er sko kellingin í þessu sambandi). Það eru örugglega einhver 15 ár síðan að mjólkursamsalan fór af stað með leik sem fól það í sér að safna 11 strikamerkjum af mjólk og líma þau á sér til gert blað sem maður fékk í búðinni, (ég náði í mitt í Staðarkjöri) svo sendirðu það inn og fékkst hálfs líters glas sent heim að launum, merkt mjólkurbikarnum í knattspyrnu. Ég tók þennan leik mjög alvarlega og drakk mjólk í öll mál og meira til, hefði örugglega blandað vodka útí mjólk ef ég hefði verið byrjaður að drekka þarna, og ég meig líka hvítu á þessu tímabili, eða allt að því. Áður en leiknum lauk hafði ég safnað strikamerkjum fyrir 8-10 glösum, þannig að það er ekkert smáræði sem drukkið var af mjólk þennan tíma sem stóð í einhverja 2 mánuði. Blessuð sé minning þeirra


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 14:57:24 / polfarinn

Maður hreynlega spyr sig

Páskarnir voru bara ágætir þetta árið, minna drukkið, en meira étið, eru það ekki bara merki um að maður sé að eldest, maður hreynlega spyr sig. Það var mikið drukkið og mikið hlegið fyrstu tvo dagana, á fimmtudaginn hélt ég matarboð heima hjá Rikka, þar sem boðið var uppá ommelettu (eggjaköku á íslensku) í aðalrétt en svo ofnrétt í eftirrétt, og fór ofnrétturinn mis vel í menn, sumir bráu á það ráð að að hafa sultu með, en þá hét það orðið skipstjórabitinn J.

 Bræðurnir Gíggi og Stjáni fóru út til Manchester um páskana til að sjá tvo leiki með sínum mönnum, þeir ákvöðu að fara á united – Sunderland á old trafford til að fá að sjá fullt af mörkum, þeir sögðu að það væri nefnilega svo gaman að vera í stúkunni og fagna mörkum með öllum hinum stuðningsmönnunum, hahahahaha leikurinn endaði 0-0 á móti liðinu í 20 og jafn framt síðasta sætinu og keyptu bræðurnir þar hundinn í sekknum, ég varð bara að koma aðeins inná þetta. En síðan fengu þeir reyndar 2 mörk á seinni leiknum sem þeir fóru á, smá sárabót.

 Tveir vinir mínir eignuðust síðan báðir stráka sitt hvorn daginn um páskana Gummi og Heiða eignuðust 16 merku bolta 14 Apríl og Bjarni Rúnar og Arna 15 merku rauðhaus15 Apríl. Til hamingju með það Strákar, og stelpur.

 Svo fer ég á sjóinn í kvöld og kem með einn glóð volgan pistil á mánudaginn, um krókaréttingar og beitingu, þannig að allir að vera á tánum eftir helgi.

En einn brandari að lokum. Það voru einu sinni tvær appelsínur að labba niður á bryggju þegar önnur datt í sjóinn, þá sagði hin, fljót, skerið hana í báta hahahaha :) 

Bless í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 01:29:29 / polfarinn

Skjótt skipast veður í lofti

Þá er Pólfarinn kominn heim af eftir tveggja vikna dvöl á Fuglinum (Geirfuglinum). Var bara að gera það fínt þarna, kom í land á sunnudagsmorguninn og fór beint inná flugvöll og heim í Pollgötuna, afþví að við vorum svo snemma í landi og áttum ekki að fara út aftur fyrr en á þriðjudagskvöld, en skjótt skipast veður í lofti og það er búið að vera blind bylur hérna fyrir westan síðan ég lennti og komst ég ekki suður aftur til að fara á sjó, þannig að ég verð bara í fríi næstu vikuna, sem er bæði gott og slæmt.

 Á meðan ég var á sjónum þá stóð Gíggi fyrir einhverri atkvæðasmölun og kom Pólfaranum á lista yfir kynþokkafyllstu menn Westfjarða á bb.is. Svo um leið og Pólfarinn komst á listann þá fylltist hann sektarkennd og hélt að þetta myndi stíga Pólfaranum til höfuðs, þetta er sko vinur í raun. Ekki snéri Pólfarinn baki í hann þegar hann tók þátt í “Herra Þruma 97”

 Um leið og ég startaði skoðannakönnunni hérna þá fór Sukki bara í vörn og snéri þessu uppá mig og fór af stað með alveg eins könnun, það má ekkert segja við hann þá fer hann bara í vörn. En hann er hinn eini sanni Sukki, nóg um það, sá vægir sem skitið hefur meira.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 16:09:53 / polfarinn

Já sjaldan er ein báran stök

Nú eru góð ráð dýr, ekkert fiskerí hjá okkur tryllukörlunum hérna fyrir westan þannig að ég hef ákveðið að skella mér bara á Geirfuglinn í Grindavík þangað til að þetta fer að lagast aftur fyrir westan og loðnan fer að drepast. Ég bý ennþá yfir þeirri þekkingu Fuglinnsem að koppurinn og Rabbi komu í mig þegar ég fór á Albatros hérna um árið, þannig að ég hef ekkert að óttast varðandi þennan túr. Er að fara í flug á eftir og ætla að kíkja á Gri – Kef í kvennaboltanum áður en ég fer á sjóinn, kíkja aðeins á Playboy gelluna, þetta er e-ð sem maður verður að sjá, svona svipað og þegar Marianne Danielsen strandaði hérna um árið, maður varð að fara og sjá (góð samlíking).

Later


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 23:11:54 / polfarinn

Norð austan 13 - 18 og ekkert sjóveður

Jæja! Pólfarinn búinn að vera í góðu fríi, hvar á ég að byrja. Fór suður í keppnisferð um síðustu helgi og var hún bara helvíti mögnuð, spiluðum 2 leiki fyrst við FSu á föstudaginn og töpuðum honum  með 20, það eina góða við þann leik var að það voru flottar klappstýrur í hálfleik og svo að Pabbi kíkti á leikinn, langt síðan ég hef séð gamla, og ekki fækkar gráu hárunum. Svo spiluðum við við Drang frá Vík í Mýrdal á laugardaginn, já ég veit að það hljómar fáránlega en þeir eru í alvörunni með lið og keppa í íþróttahúsi meira að segja, en við unnum þá með 11 stigum og fór Dýrari týpan heldur betur á kostum og fékk 6 villur, takk fyrir túkall, og geri aðrir betur. Síðan var haldið á vit ævintýranna, down town Reykjavík og þar átti eftir að kenna ýmssa grasa, til að mynda komust 2 liðsfélagar mínir á sjens á hommabar J og það var hommi sem reyndi við Gígga, (Það þarf ekki að koma á óvart) eftirlæti kynvillinganna J.. En það sem stendur uppúr þesa vikuna era að Gummi og Rikki eru loksinns búnir að ná sáttum útaf Heiðu…. Og  Issi Koppur hefur fundið ástina.. Til hamingju strákar


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 00:35:20 / polfarinn

Könnun

Jæja, það eru laungu komin úrslit úr síðustu könnun og þurfa úrslitin ekki að koma neinum á óvart. Það var enginn annar en Koppafeitissprautan og glussavélin Sigurpáll Hjörvar Árnason a.k.a Bókaormurinn sem rúllaði könnuninni upp með 68% greiddra atkvæða. En aðrir fengu minna. En þá er kominn tími á nýja könnun, skelli henni inn núna

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 22:57:37 / polfarinn

Ballið er alveg að byrja

Ég er alveg að farast úr spenningi hérna fyrir westan, og get ekki beðið eftir helginni, ætlaði að þjóf starta og fara í dag, en crazy veður kom í veg fyrir það, þannig að ég kem bara keyrandi með Kentucky kallinum á föstudaginn,  og ég get lofað ykkur því að það verður fyrst stoppað í Mosó á Kentucky og keypt fata af bitum. Kallinn sem ég er með á sjó, Kristján Andri a.k.a. Kentucky kallinn segir að það eina sem sé gott við Reykjavík sé að þar eru Kentucky staðir, allt annað sé slæmt,og hann segist alltaf stoppa á Kentucky í Mosó á leiðinni westur og kaupa sér fötu af bitum og jappla á þeim á leiðinni heim, flottur gaur.

 

Síðan verður aldeilis fjör á laugardaginn, hann byrjar á leik Liverpool og Man Utd. Á undan bikarleikjunum. United sár vantar miðjumenn, og naga sig örugglega í handabakið að hafa selt Phil Neville, Nicky Butt, og Djemba Djemba svo ekki sé minnst á 28 ára ungstyrnið Kleberson, en þeir tjasla miðjunni einhvern veginn saman, ég hef ekki trú á öðru. Þetta eru alltaf hörku leikir. Ætli við félagarnir Krúsi og Gíggi horfum ekki á þetta saman og hitum okkur upp fyrir Höllina

 

Svo er bara vonandi að Gíggi fari ekki á egó tripp við Frikka um kvöldið, eins og síðast og haldi áfram að monta sig á þessum b-landsleikjum sem hann segist hafa spilað, maður finnur ekkert um þetta á netinu, þannig að maður er farinn að efast stórlega um þetta. Svo er þetta líka orðið þreytt Gíggi, hver helduru að hafi áhuga á einhverjum b-landsleikjum í körfubolta? Allavega ekki ég. Ef af hann fer að tala um þessa leiki við einhvern á ballinu, látiði þið það þá bara ganga að fólk á bara að segja já, alveg eins og það trúi þessu, þá hættir hann.

 

Jæja, þetta er orðið fínt í bili, sjáumst í Höllinni. later


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 16:58:03 / polfarinn

Höllin 18 feb, annars hljótiði verra af!

Sælar, Pólfarinn mættur frá 400 Ísafirði, það er orðið langt síðan síðast. Ég sé samt að það eru alltaf einhverjir að kommenta hjá mér, ég skil samt ekkert hvert þetta lið er að fara, örugglega e-ð dulmál bara. Látum Gígga ráða í þetta.

Fagna þeir þann 18.Glæsó splæsó, Grindvíkingar bara komnir í höllina með bæði karlaliðið og kvennaliðið, ég er nú ansi hræddur um að það sé skyldumæting hjá öllum Grindvíkingum nær og fjær í Laugardalshöllina 18 feb. Allavega ætla ég ekki að sitja eftir heima, ætla að vera trylltur uppí stúku, málaður í bak og fyrir og í Dan Krebbs bolnum mínum sem ég var í 98 þegar við unnum helvítis Ísfirðingana. Hann er happabolur mikill. Ef að minnið er ekki að svíkja mig, þá höfum við farið þrisvar í úrslit með karlaliðið og alltaf unnið 95-98- og 2000. Leikurinn 98 er nú samt eftirminnilegastur hjá mér, þegar Beggi Hinnrikss fór á kostum í leiknum og svo á ballinu um kvöldið J og brilleraði ennþá meira á leiðinni heim eftir ball haha. Kvennaliðið er á leið í höllina í þriðja skipti, fóru fyrst 94 og töpuðu fyrir kef 53-56 svo spiluðu þær til úrslita í fyrra og töpuðu fyrir Haukum 72-69. En ég hef ekki nokkra trú á öðru en að þetta verði okkar dagur, tökum báðar dollurnar og förum svo og fáum okkur í glas í Grindavík, það hljómar ágætlega. Ég ætla að kaupa 2 kippur, en þið?


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 14:02:06 / polfarinn

Leikur í kvöld og flug suður á morgun

Það er ekki laust við að það sé kominn spenningur í kappann fyrir helginni, við feðginin erum að fara suður í útskriftarveislu til Gígga, og verður það eflaust mikið fjör. Ég veit bara ekkert hvað ég á að gefa honum, Eru þið með einhverjar hugmyndir??? Ég gef honum bara ekki neitt, hann fær örugglega svo mikið hvort sem er J. Hann er ekki ennþá farinn að nota gjöfina sem ég gaf honum þegar hann útskrifaðist úr FS, þannig að ég sé bara engan tilgang í að gefa honum neitt, hann notar það hvort sem er ekkert. Svo á hann örugglega eftir að fara að læra e-ð meira og halda margar aðrar svona veislur, og heimta meiri gjafir, en ekki frá mér, nú segji ég stopp!

 Svo er Stórleikur í Jakanum í kvöld KFÍ – ÍS. Sannkallaður fall slagur í 1. deildinni, og er eftirlæti Ísfólksinns kominn aftur í hópinn, og búist við brjáluðu stuði, Gíggi sér sér ekki fært um að mæta, held að hann sé smeikur við Pólfarann á sínum heimavelli með Ísfólkið sér í lið.

 Svo er það þetta DV mál, ég ætla nú ekkert að fara neitt nánar útí það eða segja mína skoðun á því hér, en ég hef gaman að því að fylgjast með fjörinu í kommentunum á síðunni hjá koppnum þar sem hann er búinn að biðja Kristján vinsamlegast að koma ekki aftur á síðuna hjá sér J hahaha og svo fjörinu hjá Kristjáni líka, þar eru menn með skiptar skoðannir og mikill hiti í mönnum

 Jæja, komið gott í bili, Stay black


» 98 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 01:24:53 / polfarinn

2005

Ég hef ákveðið að reyna að gera upp liðna árið eftir eftir bestu getu, hvað stóð uppúr o.s.f.r.v.

 Janúar Febrúar og Mars eru allir í móðu því ég var í fæðingarorlofi og drakk bjór og át snakk með dýfu í miklu óhófi. Skoraði 50 stig í einum leik í 2.deildinni fullur, las bara um það á netinu daginn eftir. Í lok fæðingarorlofsinns vóg ég 85 kg!

Apríl Byrjaði að vinna aftur og var bara hálf feiginn, Síðan komu Bræðurnir sí kátu í heimsókn til mín um páskana og það var alveg dúndur gaman hjá okkur, og gaman að endur heimta Krúsa aftur úr heljum Alkólistanna.

Maí Skeði ekki neitt merkilegt

Júní var ég í Grindavík ásamt fjölskyldunni og það var bara helvíti næs, loksinns fékk maður e-ð almennilegt að éta (eins gott að Svanlaug lesi þetta ekki)

Júlí Vann eins og svín við að mála Íþróttahúsið á Súganda, kláraði það með stæl og lennti í öðru sæti í meistaramótinu í gólfi í 3.flokki. (af fjórum keppendum reyndar)

Ágúst Fór á sjóinn og gerði það helvíti gott í  þessum mánuði. Keppti í Mýrarboltanum og hélt líka uppá 1. árs afmæli dóttur minnar. Fór líka á mína 8. Þjóðhátíð, en varð fyrir smá vonbrygðum með hana. Síðan kom Gíggi í heimsókn eina helgi með falilíuna og það var mjög gaman.

September Tók fram körfuboltaskónna en meiddi mig illa í hnénu fljótlega og var alveg frá vinnu í 6-8 vikur

Október Lá heima meiddur í manager

Nóvember Byrjaði að vinna aftur, fór að smíða útí Súðavík og gerði það bara ágætt, endaði svo mánuðinn fyrir sunnan í afmæli hjá Óla með þotuliðinu

Desember Byrjaði aftur á sjónum og er nú ekkert að meika það satt best að segja. Hélt jólin og áramótin hérna fyrir westan og leið bara ágætlega.

 

Ágætis ár hjá mér þó svo að það hafi í raun ekkert merkilegt gerst miðað við árið á undan. En ég er núna á mínu fjórða ári hérna fyrir Westan og vinir mínir hafa nú allir komið og heimsótt mig reglulega, sem hefur gert dvölina auðveldari. Nema Koppurinn sem er ennþá á leiðinni og veit ég ekki hvort hann komi nokkuð eftir allt. Enga afsökunn heiri ég oftar frá honum en ahh, fékk engann til að vinna fyrir mig, eða þegar ég er kominn uppá flugvöll að ná í hann, en sé hann ekki og hringi í hann og hann svarar mér þunnur og segir nú var það ekki næsta helgi! Þannig að einu sönnu vinir mínir eru greynilega  Krúsi sem hefur komið 6 sinnum, Gíggi 6 sinnum, Silli 2 og Palli Hreinn og Reynir Daði einu sinni. Aðrir minna


» 15 hafa sagt sína skoðun

30.12.2005 00:49:43 / polfarinn

Drullu Pési

Sælir kæru aðdáendur nær og fjær. Ástæða þess að ég ríf mig upp um miðja nótt er sú að minn æskuvinur Guðmundur Þórður Ásgeirsson aka Gíggi hefur ritað niðrandi orð um mig og trefilinn minn á síðuna sína og líkt mig við 3. af 7. undrum veraldar að ég held. Afþví tilefni finn ég mig knúinn til að svara þessari færslu á niðrandi hátt.  Þannig er mál með vexti að fyrir ca 10 árum vorum við vinirnir í hjólaferðalagi og var ferðinni heitið hringinn í kringum Þorbjörn, með í ferð voru ég, Gíggi, Bergvin, Tobbi Rokklingur, Ásgeir, Þorvaldur, aka Flobbi bútur, og Kiddó. Bergvin var foringinn og leiddi hópinn, og síðan ákvöðum við að stoppa og borða nestið okkar í selskógi bakvið Þorbjörn, en þegar Gíggi var búinn með nestið sitt þurfti hann að að fara og létta á sér, afþví hann er með svo hraða meltingu, þannig að hann fór afsíðis og gerði þarfir sínar og kom svo til baka og við héldum áfram að hjóla, en þar sem að ég var næst æðsti maður í klíkunni hjólaði ég síðastur og á undan mér var Gíggi, svo þegar við vorum ný lagðir af stað þá sé að það læðist e-ð niður úr skálminni á Gígga og ég trúi ekki mínum eigin augum og held bara áfram að hjóla, en þá kemur annar hlutur og ennþá stærri niður úr skálminni og ég stoppa til að kíkja á hvað þetta er, og viti menn, þetta var mannaskítur, hálf melltur og ég man þetta eins og þetta hafi gerst í gær, ég sá hnetusmjörið hálf mellt þarna í klessu með hálf mellta heima bakaða kornbrauðinu frá Svanfríði. Ég hef engum sagt þessa sögu fyrr en nú afþví að ég er vinur vina minna og vildi ekki koma besta vini mínum í vandræði. En í dag fæ ég ekki orða bundist.

 

 



Virðingarfyllst Pólfarinn


» 97 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 10:22:25 / polfarinn

Kannski bara nörd eftir allt saman

Anna, Baldur, Bjarki, Björn, Bryndís, Eyrún, Guðbrandur, Guðmundur, Gunnar, Haraldur, Hrefna, Kristinn, Matthildur, Rakel, Sigríður Anna, Sigríður Ómars, Sæmundur, Vignir, Vilhjálmur og Þuríður. Já, svei mér þá, ég held að ég sé bara nörd eftir allt saman. Ég þuldi þetta upp í gærkvöldi og spurði svo Svanlaugu hvort hún myndi ekki hverjir hefðu verið með sér í bekk í stafrósröð. Þá fékk ég þennan líka svipinn. Þá varð mér það ljóst að fólk á ekkert að muna svona lagað, ég hlít að vera e-ð skrítinn, eða bara NÖRD eins og Krúsi vill meina

 

Pólfarinn út


» 102 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 13:47:27 / polfarinn

Úrslit úr síðustu könnun

PallisterÞað eru komnar niðurstöður úr síðustu könnun. Páll Axel Vilbergsson sigraði hana með miklum yfirburðum og hlítur að launum 2 vikna námskeið hjá Heiðari snyrti  í að bera há kollvik með reisn. En úrslitin voru eftirfarandi

 

Þorsteinn Símonarson 3%

 Ómar Ragnarsson 16%

 Jóhann Þorgrímur Hallgrímsson 17%

 Ásgeir Ásgeirsson 19%

 Páll Axel Vilbergsson 45%

 

Til hamingju Palli, þú færð gjafabréfið sent heim í pósti

 

Pólfarinn út


» 99 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 21:40:39 / polfarinn

Sælkerinn

Þá er maður loksinsbúinn að finna laungunina til að blogga aftur, þegar Krúsi er búinn að blogga tvisvar á meðan ég aldrei er kominn tími til að gera e-ð í málunum. Það er af nógu að taka og ýmislegt á mína daga drifið síðan síðast. Við hjónin skelltum okkur í meistarann, nýja spurninga leikinn sem Logi Bergmann er að fara af stað með, og riðum við nú ekki feitum hesti í þeirri viðureign, fengum 50 spurningarog vissi ég kannski 10 pottþétt, og svo kannski með annað eins úr giski, og síðan var bara bullað rest, og á meðan við vorum í þessu vorum við mynduð í bak og fyrir og var kamerumaðurinn kominn alveg ofaní mig á tímabili, held að hann hafi verið e-ð hot fyrir mér.

 

 



Éta, það er það sem þeir geta, en vinna, það er e-ð minna, þetta á nú aldeilis við mann þessa dagana, lítið búið að vinna, en hins vegar mikið búið að borða, og það er greynilega farið að sjást á manni því það var skorað á okkur hjónin sem næstu matgæðinga vikunnar í BB sem er btw fréttablað okkar Westfirðinga, og tókum við hjónin þeirri áskorun fegins hendi og buðum uppá dýrindis ofnrétt. Áhugasamir geta nángast uppskriftina á bb.is

 

 



Núna erum við feðginin í Grindavík hjá mömmu og pabba á meðan Svanlaug er útí Dannmörku, og verðum við hérna fram á Mánudag, en þá fara Svanlaug og Bryndís Westur en ég verð hérna í eina viku í viðbót að vinna hjá gamla og skelli mér svo í afmælið til Óla með öllu þotuliðinu um næstu helgi.

 

 



Pólfarinn út


» 101 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2